Nýju stúlkurnar á LPGA 2014: Dottie Ardina, Victoria Tanco og Emma Jandel (12-14/48)
Það voru 48 stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA 8. desember 2013; 20 hlutu fullan keppnisrétt og aðrar 28 takmarkaðan, í gegnum Q-school Stage III, þ.e. lokaúrtökumótið á LPGA International, á Daytona Beach í Flórída.
Hér verða allar stúlkurnar 48 kynntar en sá háttur hafður á að 2-3 stúlkur, sem urðu í 21.-48. sæti verða kynntar saman en síðan verður sérkynning á hverri þeirra 20 stúlkna, sem hlaut fullan spilarétt.
Niðurskurður var að þessu sinni miðaður við slétt par, þ.e. allar sem voru á pari eða betur hlutu einhvern keppnisrétt á LPGA.
Í dag verða kynntar fyrri 3 af 6 sem voru T-32 þ.e. voru í 32.-37. sæti, en það eru Dottie Ardina, Victoria Tanco og Emma Jandel.
Dottie Ardina.

Dottie Ardina
Dottie Ardina fæddist á Calamba Laguna, á Filippseyjum. Foreldrar hennar eru Edgarido Ardina og Gina Valencia.
Dottie byrjaði að spila golf 5 ára og segir pabba sinn þann sem haft hafi mest áhrif á golfferil sinn.
Helstu áhugamál Dottie eru að fara í verslunaferðir, teikna, vera á netinu, fara í ræktina og verja tíma með frænkum sínum.
Dottie komst á LPGA í fyrstu tilraun sinni.
Victoria Tanco.

Victoria Tanco
Victoria Tanco er frá Argentínu; fæddist 25. febrúar 1994 og er því tiltölulega nýorðin 20 ára. Hún byrjaði að spila golf 6 ára og á einn bróður Nicolas. Meðal áhugamála hennar utan golfsins er að horfa á kvikmyndir, lestur góðra bóka, að spila UNO spilið, og spila borðtennis. Ef hún hefði þurft að vinna fyrir sér með öðrum hætti en á LPGA þá myndi hún hafa reynt að verða sálfræðingur vegna þess að hún nýtur þess að hlusta á fólk og hjálpa því með vandamál þeirra.
Tanco komst á LPGA í fyrstu tilraun. Hún gerist atvinnumaður í desember 2011, þ.e. 17 ára. Tanco átti frábæran áhugamannsferil, þótt stuttur hafi verið. Hún vann AJGA Rolex Girls mótið 2008, AJGA Rolex Tournament of Champions 2009, AGJA Annika Invitational 2010 og Western Amateur Championship 2011. Tanco var valin AJGA Rolex leikmaður ársins árin 2008 og 2009.
Emma Jandel.

Emma Jandel
Emma Jandel fæddist 11. mars 1988 og er því 26 ára.
Jandel byrjaði að spila golf 10 ára og segir fjölskyldu sína hafa haft mest áhrif á golfferil sinn.
Meðal áhugamála er að halda sér í formi og vera með kærastanum og vinum og fjölskyldu.
Uppáhaldsíþróttafélagið eru Ohio State Buckeyes.
Emma útskrifaðist einmitt frá Ohio State 2011, þar sem hún spilaði með golfliðinu í 4 ár og útskrifaðist 2011 með gráðu í viðskiptafræði.
Frá 2011 hefir Emma spilað á Symetra Tour og hlýtur nú í fyrsta sinn takmarkaðan spilarétt á LPGA.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
