Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 18. 2014 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2014: Jackie Stoelting, Louise Friberg og Stacey Keating (9-11/48)

Það voru 48 stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA 8. desember 2013; 20 hlutu fullan keppnisrétt og aðrar 28 takmarkaðan, í gegnum Q-school Stage III, þ.e. lokaúrtökumótið á LPGA International, á Daytona Beach í Flórída.

Hér verða allar stúlkurnar 48 kynntar en sá háttur hafður á að 2-3 stúlkur, sem urðu í 21.-48. sæti verða kynntar saman en síðan verður sérkynning  á hverri þeirra 20 stúlkna, sem hlaut fullan spilarétt.

Niðurskurður var að þessu sinni miðaður við slétt par, þ.e. allar sem voru á pari eða betur hlutu einhvern keppnisrétt á LPGA.

Í dag verða kynntar seinni 3 af 6 sem voru T-38 þ.e. voru í 38.-43. sæti, en fyrri 3, þær Nicole Sheary, Lindy Duncan  og Kristie Smith.

Þær 3 sem kynntar verða í dag eru Jackie Stoelting, Louise Friberg og Stacey Keating og verður byrjað á Stoelting:

Jackie Stoelting.

Jackie Stoelting

Jackie Stoelting

Jackie Stoelting fæddist 15. júlí 1986 í Houston Texas og er því 27 ára.

Stoelting byrjaði að spila golf 4 ára og segir foreldra sína hafa haft mest áhrif á feril sinn.

Stoelting lék 4 ár í bandaríska háskólagolfinu með golfliði Florida Southern College og útskrifaðist 2008 með gráðu í kennslufræðum.

Stoelting gerðist atvinnumaður í golfi strax eftir útskrift. Stoelting hefir allt frá þeim tíma spilað á Symetra Tour og er nú að hljóta kortið sitt með takmörkuðum spilarétti á LPGA í fyrsta sinn.

Louise Friberg.

Louise Friberg

Louise Friberg

Louise Friberg fæddist 24. júní 1980 í Helsingborg, Svíþjóð og er því 33 ára.

Friberg byrjaði í golfi 9 ára og segir foreldra sína og systur hafa haft mest áhrif á feril sinn.

Hún lék í bandaríska háskólagolfinu með golfliði University of Washington, þaðan sem hún útskrifaðist 2003 með gráðu í umhverfisrétti.

Friberg hefir verið í sænska golflandsliðinu frá 1996. Hún spilaði m.a. unglingamótaröð Svíþjóðar og varð Norðurlandameistari í golfi 1997.

Friberg var Friberg hlaut Second-Team All-Pac-10 honors árið 2002 og First-Team All-Pac-10 honors árið 2003 í University of Washington.

Árið 2005 spilaði hún á Telia Tour og hefir síðan þá spilað á einstökum mótum á LPGA.

Meðal áhugamála Friberg er lestur góðra bóka, bílar og að verja tíma með fjölskyldu og vinum.

Sjá má allt nánar um Friberg með því að SMELLA HÉR: 

Stacey Keating.

Stacy Keating

Stacy Keating

Stacy Keating fæddist 21. júní 1986 í Ballarat, Viktoríu, Ástralíu og er því 27 ára.

Keating byrjaði að spila golf 12 ára og segir afa sinn og ömmu og þjálfarann Steven Giuliano hafa haft mest áhrif á golfferil sinn.

Keating vann  Canadian Women’s Amateur, árið 2008 og Australian Women’s Amateur, árið 2010.   Árið 2010 hlaut Keating Karrie Webb skólastyrkinn fyrir að vera nr. 1 með ástralskra kvenkylfings áhugamanna.

Meðal áhugamála Keating eru tennis og að fylgjast með áströlskum íþróttamönnum í flestum greinum.

Í árslok 2010 gerðist Stacy Keating atvinnumaður í golfi.  Árið 2011 sigraði Keating tvívegis á ALPG:  he Hahn Premium Light & Konami Port Kembla Golf Club Pro-Am og Mount Broughton Ladies Classic.

Árið þar á eftir, 2012, sigraði Keating síðan tvívegis á LET, þ.e. á Open de France Dames og Open De España Femenino.

Árið 2013 sigraði Keating aftur á ALPG þ.e. á  Vintage Golf Club Pro-Am og Women’s Victorian Open on the ALPGA Tour, en hápunktur ársins var að hljóta takmarkaðan spilarétt á LPGA í lok árs 2013 eins og fyrr segir.