Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 15. 2014 | 08:30

GR: Opna Flugfélags Íslands mótið haldið sunnudaginn 22. júní á Korpu – Glæsileg verðlaun!

Opna Flugfélags Íslands mótið verður haldið á Korpúlfsstaðavelli sunnudaginn 22. júní. Sá hluti Korpúlfsstaðavallar sem leikinn verður er Áin/ Landið. Leikfyrikomulag mótsins er punktakeppni. Leikið er í tveimur flokkum. Flokki 0–8,4 og 8,5 og hærra. Hámarksforgjöf karla er gefin 24 og 28 hjá konum. Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir 3 efstu sætin í hvorum flokki. Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta skor. Að auki verða veitt nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarsins.

Ræst er út af öllum teigum samtímis kl.9:00. Mæting kl.8:00, í boði verður léttur morgunmatur.

Skráning hefst mánudaginn 16. júní kl.9:00 á www.golf.is. Rástímar á www. golf.is eru einungis til að raða í holl.  Mikilvægt er að þeir sem ætla að spila saman í holli séu skráðir hlið við hlið í rástíma á golf.is. Greiða þarf við skráningu.

Verðlaun:

Flokkur 0 – 8,4:
1. sæti – Evrópuferð með Icelandair fyrir 2
2. sæti – Dagsferð til Kulusuk fyrir 2
3. sæti – Flug að eigin vali innanlands fyrir 2

Flokkur 8,5 – hærra:
1. sæti – Evrópuferð með Icelandair fyrir 2
2. sæti – Dagsferð til Kulusuk fyrir 2
3. sæti – Flug að eigin vali innanlands fyrir 2

Besta skor:
1. sæti – Flug að eigin vali innanlands fyrir 4 og 4 golfhringir á völlum GR

Nándarverðlaun:
13. braut – Flug til Akureyrar fyrir 1
17. braut – Flug til Akureyrar fyrir 1
22. braut – Flug til Egilsstaða fyrir 1
25. braut – Flug til Ísafjarðar fyrir 1

Teiggjöf: Golfhanski, golfboltar og tí.

Að loknu móti verður verðlaunaafhending og léttar veitingar í boði Flugfélags Íslands. Dregið verður úr skorkortum samhliða verðlaunaafhendingu.

Golfklúbbur Reykjavíkur í samvinnu við Flugfélag Íslands.