Nýju stúlkurnar á LPGA 2014: Marta Silva og Dani Holmqvist (1-2/ 48)
Það voru 48 stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA 8. desember 2013; 20 hlutu fullan keppnisrétt og aðrar 28 takmarkaðan, í gegnum Q-school Stage III, þ.e. lokaúrtökumótið á LPGA International, á Daytona Beach í Flórída.
Hér verða allar stúlkurnar 48 kynntar en sá háttur hafður á að 2-3 stúlkur, sem urðu í 21.-48. sæti verða kynntar saman en síðan verður sérkynning á hverri þeirra 20 stúlkna, sem hlaut fullan spilarétt.
Niðurskurður var að þessu sinn miðaður við slétt par, þ.e. allar sem voru á pari eða betur hlutu einhvern keppnisrétt á LPGA.
Í kvöld verða kynntar fyrstu 2 af 5 sem voru T-44 þ.e. voru í 44.-48. sæti.
Þessar fyrstu tvær eru Marta Silva frá Spáni og Dani Holmqvist frá Svíþjóð.
Byrjað verður að kynna Mörtu Silva stuttlega:
Marta Silva fæddist 9. janúar 1990 og er því 24 ára. Marta byrjaði að spila golf 9 ára og segir foreldra sína hafa haft mestu áhrifin á feril sinn.
Meðal áhugamála Mörtu eru aðrar íþróttir og að vera aktíf, m.a. með því að dansa og syngja. Hún komst á LPGA í 2. tilraun sinni.
Marta útskrifaðist með gráðu í samskiptafræðum frá University og Georgia fyrir 2 árum, en hún spilaði golf með liði háskólans.
Lokaskor Mörtu í Q-school LPGA var samtals slétt par eða 360 högg (73-73-71-70 – 73) og rétt slapp hún því inn á LPGA, þar sem hún hefir takmarkaðan spilarétt.
Sem stendur er Marta nr. 341 á Rolex-heimslistanum.
Hér má loks sjá viðtal LET við Mörtu Silva SMELLIÐ HÉR:
Hin stúlkan sem kynnt verður í kvöld er Dani Holmqvist, en líkt og Marta rétt slapp Dani inn á LPGA á sléttu pari og T-44 en lokaskor hennar var 75-72-68-72 – 73 – 360 (E).
Dani fæddist 3. maí 1988 í Bern, Sviss og er því 26 ára. Hún komst á LET í gegnum Lalla Aicha Tour School fyrir 2 árum og þá kynnti Golf 1 Dani eða Danielu og á þá kynning allt eins við í dag – sjá með því að SMELLA HÉR:
Dani komst í golffréttirnar þegar hún var við keppni í Ástralíu og var bitin af svörtu ekkjunni, eitraðri könguló og notaði tí til að pota eiturbroddinum úr og hélt áfram keppni – sjá með því að SMELLA HÉR:
Hér má að lokum sjá nýlegt viðtal LPGA við Dani Holmqvist SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024


