Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 26. 2014 | 15:30

GA-konur á ferðalagi í Borgarnesi

Kvennaferð GA 2014 var farin helgina, 16.-18. maí 2014.

Að þessu sinni var ferðinni heitið á Hótel Hamar í Borgarnesi og fóru 19 konur galvaskar frá Akureyri.

Lagt var af stað á föstudagsmorgun þann 16 maí. Spilaðar voru 18 holur alla 3 dagana sem ferðin stóð yfir.

Veðrið lék svona nokkurn vegin við GA-konurnar. Móttökur og allur aðbúnaður var eins og best var á kosið þó völlurinn hafi verið pínu blautur á köflum.

Stjanað var að sögn við GA-konurnar alveg hægri, vinstri og kunna þær bestu þakkir fyrir.

Heimild: gagolf.is