Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2014 | 10:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2014 (efstu 25 af peningalista Web.com): Alex Prugh (15/25)

Efstu 25 af peningalista Web.com Tour 2013 hlutu kortin sín á PGA Tour, keppnistímabilið 2013-2014. Í dag verður kynntur sá, sem varð í 11. sæti, en það er  Alex Prugh

Prugh lék eins og öllum efstu 25, af peningalista Web.com Tour, stendur til boða á Web.com Tour Finals, um bætta stöðu og varð í 42. sæti, (af 50) og bætti því stöðu sína ekkert

Alexander Prugh fæddist 1. september 1984 í Spokane, Washington. Prugh var í Joel E. Ferris menntaskólanum, þar sem hann var í golfliðinu. Hann spilaði síðar í bandaríska háskólagolfinu með University of Washington, þars em hann var þrefaldur varsity Pac-10-All-Conference. Árið 2010 kvæntist Alex núverandi konu sinni, Katie.

Katie og Alex Prugh

Katie og Alex Prugh

Atvinnumannsferill

Frá því að Prugh gerðist atvinnumaður árið 2007 hefir hann varið mestum tíma við golfleik á Nationawide Tour (nú Web.com Tour) þar sem hann hefir sigrað 1 sinni þ.e. á Michael Hill New Zealand Open, árið 2009.

Árið 2009 varð Prugh í 16. sæti á peningalista Nationwide Tour og vann sér í fyrsta sinn keppnisrétt á PGA Tour 2010. Aðeins í 3. móti sínu á PGA var Prugh í forystu á lokahring Bob Hope Classic. Mikið rigningarveður varð til þess að miklar tafir urðu og þegar aftur var farið að spila missti Prugh niður forystuna og hafnaði einn í 5. sæti og hlaut í verðlaun $200,000. Hann varð líka í 5. sæti á næsta móti Farmers Insurance Open og í 10. sæti á the Northern Trust Open.

Besti árangur Prug er T-2 árangur á Frys.com Open, árið 2010.

Prugh var sem segir í 11. sæti á peningalista Web.com Tour 2013 var vann sér inn keppnisrétt og kortið sitt á PGA Tour 2014.