Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 22. 2014 | 16:30

Elín segir Tiger „frábæran pabba“ en á erfitt með að gleyma svikum hans

Elín Nordegren tjáði sig í fyrsta skipti í 4 ár um samband sitt við Tiger Woods í tímaritinu „People Magazine.“

Þar sagði hún að Tiger væri samband þeirra væri „virkilega gott“ í dag, hún væri komin yfir það sem gerst hefði í hjúskap þeirra (framhjáhald Tiger)  og væri á góðum stað í lífinu í dag; hún hefði bara haldið áfram ….

Og það er svo sannarlega margt gott að gerast í lífi Elinar Nordegren í dag – hún útskrifaðist úr háskóla fyrir skemmstu – var hæst í árgangnum með 3,96 í meðaleinkunn (hæst gefið 4) og hélt útskrifataræðuna s.s. Golf 1 hefir áður greint frá SMELLIÐ HÉR:

Svo virðist samt hún sé ekki alveg komin yfir Tiger því hún segir jafnframt í viðtalinu að svik sé varla nógu sterkt orð til þess að lýsa gríðarlegum framhjáhöldum Tiger.

„Þungamiðja sambands okkar í dag eru börnin. Og okkur gengur vel. Virkilega vel. Hann er frábær pabbi.“

„Ég er ánægð fyrir hönd Tiger.“ Og um Lindsey Vonn sagði Elín: „Rétt eins og í öllum stjúpsamböndum er ég ánægð með að annari þyki líka vænt um börnin mín.“