Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 18. 2014 | 23:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ágústa Dúa Jónsdóttir – 18. maí 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Ágústa Dúa Jónsdóttir.  Ágústa Dúa er fædd 18. maí 1956 og er  í Nesklúbbnum. Hún á synina Jón Þór og Árna Mugg Sigurðssyni.

Ágústa Dúa hefir tekið þátt í fjölmörgum opnum mótum og alltaf með góðum árangri, t.a.m. tók hún þátt í Lancôme mótinu á Hellu 4. maí s.l. og má sjá mynd af  ráshóp hennar hér fyrir neðan (Ágústa Dúa er 2. f.v.):

Afmæliskylfingurinn (2. f.v.) á Lancôme móti 4. maí 2014. Mynd: Golf 1

Afmæliskylfingurinn (2. f.v.) á Lancôme móti 4. maí 2014. Mynd: Golf 1

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Ágústu Dúu til hamingju með daginn hér fyrir neðan:

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:

Roger Davis 18. maí 1951 (63 ára); Joe Naomichi Ozaki 18. maí 1956 (58 ára); Tom Jackson 18. maí 1960 (54 ára); Jaime Gomez 18. maí 1967 (47 ára); Sideri Vanova, 18. maí 1989 (25 ára), tékknesk spilar á LET Access;

…. og ……

 

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is