Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 17. 2014 | 20:00

Bandaríska háskólagolfið: Axel lauk keppni langt frá sínu besta á NCAA Sugar Grove Regionals

Axel Bóasson, GK og golflið Mississippi State tóku þátt í  NCAA Sugar Grove Regional, sem fram fór á Rich Harvest Farmes, í Sugar Grove, Illinois.

Mótið fór fram dagana 15.-17. maí 2014 og lauk í kvöld. Þátttakendur voru 75 frá 19 háskólum.

Axel byrjaði ágætlega var á 4 yfir pari 76 höggum; en verr gekk seinni tvo hringina sem Axel lék á 83 og 84 höggum.

Samtals var Axel á 27 yfir pari, 243 höggum (76 83 84) og varð í 64. sæti í einstaklingskeppninni.

Axel var á 5. og lakasta skori Mississippi State,  sem lauk keppni  í 12. sæti í liðakeppninni.

Til þess að sjá lokastöðuna á  NCAA Sugar Grove Championship SMELLIÐ HÉR: