Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 13. 2014 | 18:00

Afmæliskylfingur dagsins: Saga Ísafold Arnarsdóttir – 13. maí 2014

Afmæliskylfingur dagsins er  Saga Ísafold Arnarsdóttir. Saga Ísafold er fædd 13. maí 1994 og á því 20 ára stórafmæli í dag. Hún er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði.

Saga Ísafold hefir m.a. verið í afrekshóp GSÍ 2012 (B-hóp) og var ein af 6 stúlkum úr Keili sem spiluðu á Opna undir 18 ára mótinu á Írlandi í apríl 2012.

Eins spilaði Saga Ísafold á Eimskipsmótaröðinni 2012 og varð m.a. í 13. sæti af konunum, á 1. móti mótaraðarinnar í Leirunni.

Saga Ísafold varð einnig Íslandsmeistari í sveitakeppni unglinga (í stúlknaflokki) með A-sveit Keilis í Þorlákshöfn.

Íslandsmeistarar í A-sveit Keilis í sveitakeppni GSÍ 2012 í stúlknaflokki. F.v.:  Anna Sólveig Snorradóttir, Högna Kristbjörg Knútsdóttir, Sara Margrét Hinriksdóttir og liggjandi fyrir framan Saga Ísafold Arnarsdóttir. Mynd: Helga Laufey Guðmundsdóttir

Íslandsmeistarar í A-sveit Keilis í sveitakeppni GSÍ 2012 í stúlknaflokki. F.v.: Anna Sólveig Snorradóttir, Högna Kristbjörg Knútsdóttir, Sara Margrét Hinriksdóttir og liggjandi fyrir framan Saga Ísafold Arnarsdóttir. Mynd: Helga Laufey Guðmundsdóttir

Komast má á facebook síðu Sögu Ísafoldar hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með afmælið

Saga Ísafold Arnarsdóttir, GK. Mynd: Í einkaeigu
Saga Ísafold Arnarsdóttir (20 ára) – Innilega til hamingju með afmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Iain McGregor (kylfusveinn Alastair Forsyth) f. 13. maí  1961 – d. 11. maí 2014;  Patrik Sjöland 13. maí 1971 (43 ára);  Nathan Andrew Green, 13. maí 1975 (39 ára);  Caroline Hedwall, 13. maí 1989 (25 ára stórafmæli!!!) ….. og …….

Finnur Sturluson  (62 ára)
Arnar Loftsson (47 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is