Hver er kylfingurinn: Martin Kaymer? (1/7)
Þýski kylfingurinn Martin Kaymer sigraði í gær í 2. sinn í risamóti , þ.e. Opna bandaríska. Þessi greinasería hefir birtst fyrr á árinu þegar hann sigraði í 2. sinn á PGA mótaröðinni bandarísku, þá á The Players mótinu, sem af mörgum er álitið vera 5. risamótið, en birtist nú að nýju í tilefni þess að hann sigraði í 2. risamóti sínu.
Hver er þýski kylfingurinn Martin Kaymer og hvernig hefir ferill hans verið fram að þessu? Því verður reynt að svara í nýrri 7 hluta greinaseríu og fer 1. greinin hér á eftir, sem er örlítið yfirlit yfir ýmsa hápunkta á ferli Kaymer:
Martin Kaymer fæddist 28. desember 1984 í Düsseldorf í Þýskalandi og er því 29 ára. Hann er 1,84 m á hæð og 74 kg þungur. Þegar hann er í Þýskalandi býr hann í Mettmann, sem er lítið þorp fyrir utan Düsseldorf.
Kaymer gerðist atvinnumaður 2005. Hann leikur bæði á Evrópumótaröðinni og PGA Tour og hefir á atvinnumannsferli sínum unnið 20 sigra, þar af 10 á Evrópumótaröðinni. Meðal flottustu sigra hans eru sigur hans á eina risamóti hans til þessa PGA Championship, sem kom árið 2010 og nú sigurinn í gær á The Players, 11. maí 2014! Kaymer er aðeins 2. Þjóðverjinn til þess að vinna risamót á eftir Bernhard Langer.
Annað sem Kaymer er þekktur fyrir er að hafa sigrað á WGC-HSBC Champions árið 2011, en með því varð hann aðeins 10. kylfingurinn í golfsögunni, sem sigrað hefir bæði á heimsmóti og í risamóti.
Einna þekktastur er Kaymer þó e.t.v. fyrir að hafa verið í kraftaverka Ryder bikars liði Evrópu 2012 í Medinah en þar sökkti hann mikilvægu pútti á 18. flöt í tvímenningsleik sunnudagsins, sem innsiglaði það að Ryder bikarinn varð um kjurrt í Evrópu í 2 ár til viðbótar. Í ár er Ryder bikars ár og er vitað að Kaymer þyrstir að spila á Gleneagles. Með frammistöðu eins og í gær er ekki ólíklegt að svo verði!!!
Mörgum fannst kominn tími á Kaymer, þ.e. tími á að hann sigraði í móti, en hann hefir verið á hraðbyri niður heimslistann var kominn niður í 61. sætið á heimslistanum en fór upp um 33 sæti vegna sigursins á The Players og er nú í 28. sæti!!!
Kaymer hefir þó áður náð því að verða nr. 1 á heimslistanum en það gerðist 27. febrúar 2011 þegar hann varð í 2. sæti á Accenture heimsmótinu í holukeppni, en hann missti þó toppsætið á heimslistanum 8 vikum síðar í hendur á Lee Westwood.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
