Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 12. 2014 | 02:00

Evróputúrinn: Kylfusveinn Alastair Forsyth – Iain McGregor dó úr hjartaáfalli á Madeira

Iain McGregor kylfusveinn Alastair Forsyth lést úr hjartaáfalli á 9. flöt Santo da Serra golfvellinum á Madeira á lokahring Madeira Islands Open.

McGregor var 53 ára.

Sjúkrabíll var fljótlega mættur á svæðið

Í yfirlýsingu sem Evrópumótaröðin sendi frá sér var staðfest að Iain McGregor sem var frá Zimbabwe hefði látist þrátt fyrir ítrustu tilraunir bráðaliða til endurlífgunar.

Í yfirlýsingunni sagði: „Allir á Evrópumótaröðinni senda sínar dýpstu samúðarkveðjur til vina og fjölskyldu Iain á þessum tíma. Eftir að hafa ráðfært okkur við leikmenn og kylfusveina hefir sú ákvörðun verið tekin að halda leik áfram og klára mótið.“

Allar endurlífgunartilraunir báru engan árangur

Allar endurlífgunartilraunir báru engan árangur

Ekki voru allir sáttir við að haldið var áfram með mótið og töldu að í ljósi aðstæðna hefði átt að hætta við mótið. Forsyth sagði þó í viðtali að hann vissi að „Mac“ (Iain McGregor) myndi hafa viljað að mótið yrði klárað.

Gary Player var meðal þeirra fyrstu sem tvítaði samúðarkveðjur: „Hvíldu í friði Stóri Mac. Þín verður saknað. Samúðarkveðjur.“