Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 6. 2014 | 23:00

Lindsey um hvað fær samband þeirra Tiger til að virka

Lindsey Vonn  hefir upplýst hvað það er sem fær samband hennar og nr. 1 á heimslistanum Tiger Woods til þess að virka þrátt fyrir stöðuga athygli fjölmiðla.

Skíðadrottningin sagði í viðtali við E! News að þrátt fyrir að líf þeirra færi fram fyrir opnum tjöldum í fjölmiðlum og það væri aldrei auðvelt, þá væru það íþróttirnar og metnaður þeirra beggja til þess að vera nr. 1 sem  fengi samband þeirra til að virka.

Lindsey, 29 ára , sagði að þau ættu svo mikið sameiginlegt í því sambandi að það tengdi þau.

Vonn, sem vann gullið á vetrarólympíuleikunum í bruni 2010 sagði að það væri sama hvað allir í kringum þau segðu, þau vissu hvað þau væru og hvar þau væru stödd og það væri það eina sem skipti máli.

Hún sagði það hafa verið sárt að geta ekki keppt í Sochi, en hún hefði þurft að hvíla hnéð (nokkuð sem maður hefir heyrt áður hjá Tiger og e.t.v. enn eitt atriðið sem þau eiga sameiginlegt!)