Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 6. 2014 | 15:00

GSS: Hlynur ráðinn þjálfari

Síðasta vetrardag var gengið frá ráðningu golfþjálfara hjá GSS fyrir sumarið 2014.

Hlynur Þór Haraldsson PGA þjálfari og Pétur Friðjónsson formaður GSS skrifuðu undir samning í blíðskaparveðri í klúbbhúsinu á Hlíðarenda.

Nýr þjálfari ráðinn

Hlynur er útskrifaður með réttindi PGA golfkennara úr norska golfkennaraskólanum, starfaði sem yfirþjálfari hjá Sticklestad golfklúbbnum og síðustu ár sem þjálfari hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar.

Hann mun sjá um alla þjálfun hjá klúbbnum og einnig koma að skipulagningu og uppbyggingu kennslutilhögunar til næstu ára. Þ

að er mikill hvalreki fyrir klúbbinn að fá Hlyn til starfans og er mikil tilhlökkun og væntingar bundnar við komu hans.

Nánari upplýsingar um Hlyn og kennslu má sjá með því að SMELLA HÉR: