GA: Vorverkin hafin að Jaðri
Nú er nóg að gera hjá Steindóri og Daniel á Jaðarsvelli; vorverkin komin á fullt með hækkandi sól.
Flatirnar eru búnar að vera alveg auðar í talsverðan tíma og þ. 23. apríl s.l. var borið á þær í annað sinn. Einnig var kveikt á vökvunarkerfinu og þær vökvaðar eftir áburðargjöfina. Það hefur verið mikill þurrkur undanfarið og því nauðsynlegt að koma vatni á þær.
Staðan á vellinum er heilt yfir mjög góð. Það er ennþá þónokkur snjór á vellinum en hann fer minnkandi dag frá degi í veðurblíðunni sem hefur herjað á Akureyri undanfarna daga.
Eins og þetta horfir núna þá eru einungis tvær flatir, sem eru illa farnar, annað lítur mjög vel út. Þessar flatir eru sjöunda og átjánda og verður sett allt kapp í að koma þeim í stand sem fyrst.
Stefnt er að því að halda vinnudag þann 10 maí næstkomandi og eru GA-félagar beðnir að taka daginn frá og koma og hjálpa til á golfvellinum.
Margar hendur vinna létt verk! 🙂
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
