Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 26. 2014 | 12:00

PGA: Krókódílaviðureign John Peterson – Vídeó

Meðal hápunkta á 2. degi Zurich Clacssic sem fram fer á TPC Louisiana var atvik sem átti sér stað þegar James Driscoll sló bolta sínum í flatarglompu sem var í jaðri vatnshindrunar.

Á bakkanum var krókódíll í sólbaði. Driscoll ákvað að bíða og slá ekki þar til krókódíllinn væri farinn, en króksi virtist ekkert hafa minnstu áhyggjur af leikhraða og lá sem fastastur.

Það var þá sem John Peterson, nýliði á PGA og fyrrum liðsmaður í golfliði LSU og ráshópsfélagi Driscoll greip til sinna ráða, tók upp hrífu úr sandglompunni og sló henni í afturenda króksa, sem forðaði sér þá hið snarasta út í vatnshindrunina.

Slíkt er stórhættulegt og ekki til eftirbreytni fyrir kylfinga sem spila erlendis þar sem krókódílar eru á völlum – en kvikindin geta allt eins snúist til varnar og  ráðist á viðkomandi og reyna þá að draga viðkomandi út í vatn til að drekkja hann og rífa hann síðan í sig!

Af Driscoll og Peterson er það að segja að hvorugur þeirra komst í gegnum niðurskurð á Zurich Classic, en Driscoll fékk fugl á holuna meðan króksi horfði á!

Sjá má myndskeið af viðureign John Peterson við krókódílinn í upphafi golffréttamyndskeiðs Golf Central  SMELLIÐ HÉR: