Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 24. 2014 | 23:00

Bandaríska háskólagolfið: Guðrún Brá efst e. 1. hring Mountain West Conference Champ.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og golflið Fresno State „The Bulldogs“ hófu í dag leik á Mountain West Conference Championship svæðismótinu.

Mótið fer fram á Rancho Mirage, í Kaliforníu þar sem Kraft Nabisco risamót kvennagolfsins er haldið á hverju ári.

Mótið stendur dagana 24.-26. apríl 2014 og þátttakendur eru 45 frá 9 háskólum.

Guðrún Brá er í 1. sæti eftir 1. hring en hún lék á 1 undir pari, 71 höggi. Hún er á besta skori Fresno State sem er í 4. sæti í liðakeppninni.

Til þess að fylgjast með gengi Guðrúnar Brár SMELLIÐ HÉR: