Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 24. 2014 | 20:30

Tiger ásamt Elínu og Lindsey á boltaleik sonar síns

Svo virðist sem allt sé í besta lagi hjá Woods fjölskyldunni; allir vinir og allt í sátt og samlyndi.

Þannig sást nú nýlega til hins bakþjáða Tiger , sem er að kosta golfheiminn milljarða með fjarveru sinni frá keppnisgolfi, þar sem hann var ásamt báðum konum sínum, þ.e. fyrrverandi eiginkonu sinni, Elínu Nordegren og núverandi kærustu sinni, skíðadrottningunni, Lindsey Vonn, þar sem þau voru öll að horfa á hafnaboltaleik Charlie sonar Elínar og Tiger.

Þrenningin sat saman á leikvangi í Flórída og sagði heimildarmaður að Woods og Nordegren hefðu „hegðað sér vel… jafnvel verið vingjarnleg“ hvort við annað.

Sambandið endaði illa hjá Tiger og Elínu vegna framhjáhalda Tiger, sem upp komst árið 2009.

Að sögn annarra heimildarmanna vill Elín kynnast Lindsey betur þar sem hún mun jú verja einhverjum tíma með börnum hennar, Sam og Charlie.

Einn heimildarmaður US Weekley sagði jafnvel: „Það virðist skrítið en Elínu er mjög vel við Lindsey og þær tala saman allan tímann.“