Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 6. 2014 | 02:30

LPGA: Lexi og Michelle Wie leiða fyrir lokahring Kraft Nabisco Championship

Það eru þær stöllur Lexi Thompson og Michelle Wie, sem leiða fyrir lokahringinn á Kraft Nabisco Championship.

Hvorugri þeirra hefir tekist að sigra á risamóti á ferlinum. Pressan er meiri á hina 24 ára  Wie að klára dæmið og rísa loks undir öllum væntingunum, sem gerðar hafa verið til hennar í um áratugaskeið.  Lexi er nýorðin 19 ára og keppnist við að ná fyrsta risatitilinum fyrir 20 ára aldurinn.

Lexi hefir á sínum stutta LPGA ferli sigrað 3 sinnum, meðan Wie sem átt hefir öllu lengri feril hefir sigrað 2 sinnum.  Wie hefir hins vegar oftar verið nær því að sigra á risamóti, og besti árangur hennar á risamótunum 5 eru m.a. að hafa 3 landað 3. sætinu og 1 sinni 2. sætinu (T-3 á Kraft Nabisco Championship 2006; 2. sætið á LPGA Championship 2005; T-3 á US Women´s Open 2006 og T-3 á Women´s British Open 2005), meðan besti árangur Lexi er bara einn 3. sætis árangur (á Evian Masters 2013), að vísu i færri tilraunum en Wie.

Báðar eru þær Lexi og Michelle Wie búnar að spila á samtals 10 undir pari, 206 höggum og hafa 2 högga forystu á Solheim Cup stjörnuna evrópsku Charley Hull og golfdrottinguna suður-kóreönsku, Se Ri Pak sem samtals er búnar að spila á 8 undir pari, hvor.

Á samtals 6 undir pari, 4 höggum á eftir Lexi og Wie eru síðan Catriona Matthew og Cristie Kerr.

Hver stendur uppi sem sigurvegari í kvðld? Er það ein af ofangreindum 6? Eða einhver allt önnur.  Spennandi kvöld framundan í kvennagolfinu!

Til að sjá stöðuna eftir 3. dag Kraft Nabisco Championship SMELLIÐ HÉR: