Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 21. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Sören Hansen —- 21. mars 2014

Það er danski kylfingurinn Sören Hansen, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hann fæddist í Kaupmannahöfn 21. mars 1974 og á því 40 ára stórafmæli í dag. Sören varð Danmerkurmeistari í höggleik áhugamanna 1997 og gerðist atvinnumaður seinna það ár. Hann á að baki 3 sigra á atvinnumannferli sínum: 2 á Evrópumótaröðinni (hefir verið á Evrópumótaröðinni frá árinu 1999) vann fyrsta sigurinn á Murpy´s Irish Open 2002 og síðan Mercedes-Benz Championship 2007 og 1 á Challenge Tour: þ.e. á Navision Open Golf Championship  1998.

Árið 2007 komst hann á topp-50 listann á heimslistanum og var efsti Daninn á listanum. Sören Hansen var í Ryder Cup liði Evrópu 2008 en vann ekki einn einasta leik.

Hann spilaði í heimsbikarnum (ens.: World Cup) f.h. Danmerkur á árunum 1998, 2001, 2002, 2005 and 2007.

Þann 11. ágúst 2009, var Hansen ákærður fyrir skattasniðgöngu af dönskum skattyfirvöldum fyrir að segja heimilisfesti sína vera í Monaco þegar þann bjó í raun í Danmörku. Þann 10. maí var Hansen sektaður um $ 1.1 milljón (u.þ.b. 127 milljónir íslenskra króna) fyrir skattasniðgöngu.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Myra Abigail „Daria“ Pratt (Pankhurst-, Wright-, -Karageorgevich) f. 21. mars 1859 – d. 26. júní 1938 (Daria vann bronsverðlaun á Ólympíuleikunum 1900); Michael McCullough, 21. mars 1945 (69 ára);  Karen Lunn, 21. mars 1966 (48 ára); Stewart Cink, 21. mars 1973 (41 árs); Peter Campbell, 21. mars 1985 (29 ára)

Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is