Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 10. 2014 | 09:00

Hver er kylfingurinn: Chesson Hadley?

Chesson Tyler Hadley vann í gær sinn fyrsta sigur á PGA Tour, þegar hann sigraði á Puerto Rico Open.

Chesson Hadley fæddist 5. júlí 1987 í Raleigh, Norður-Karólínu og er því 26 ára.  Hadley gerðist atvinnumaður í golfi árið 2010 en það ár kvæntist hann líka eiginkonu sinni, Amöndu en saman eiga þau soninn Hughes.

Hadley spilaði golf með golfliði Georgia Tech þar sem hann var þrívegis All-American og vann síðan 2 mót árið 2012, þ.á.m. Atlantic Coast Conference championship. Hadley var í Palmer Cup liðinu árið 2008 Palmer Cup team.

Fyrst eftir að Hadley gerðist atvinnumaður 2010 spilaði hann á Web.com Tour árið 2013 og vann fyrsta mótið sitt á þeirri mótaröð í júní á s.l. ári þ.e. Rex Hospital Open. Hadley bætti síðan 2. sigri sínum við á Web.com þegar hann vann Web.com Tour Championship 29. september 2013. Hann varð í 3. sæti á peningalista  Web.com Tour og vann sér þannig inn kortið sitt á PGA Tour.

Hér eru ýmsir fróðleiksmolar um Hadley:

Hadley byrjaði að spila golf 6 ára (fyrir 20 árum) og uppáhaldsminning hans er að spila golf með pabba með fyrsta settinu sínu.

Hadley spilar golf rétthentur, en er örvhentur í flestöllu öðru sem hann gerir.

Hann hjálpar til í kirkjunni sinni og hefir einnig hjálpað til í fátækraeldhúsum, sem gefa fátækum mat í Bandaríkjunum.

Allt frá því hann útskrifaðist úr háskóla hefir hann verið þjónn í ítalska veitingastaðnum Casa Carbone í Raleigh, Norður-Karólínu.

Hadley rakar sig ekki meðan hann keppir í mótum.

Honum finnst gaman að lesa drudgereport.com

Twitterfangið hans er: @chadleyprogolf

Það sem ekki allir vita um hann er að Hadley myndi frekar vilja vaska upp allan daginn en að þvo þvott!

Fram til þess hefir hápunktur ferils hans verið sigur í The Rex Hospital Open á heimavelli í Raleigh (ætli það hafi ekki breyst í gær við að sigra í Puerto Rico Open).

Með sigrinum á Puerto Rico Open fær Hadley $ 630.000 í verðlaunafé,  þ.e. u.þ.b.  70 milljónir íslenskra króna. Hadley fær auk þess 2 ára keppnisrétt á PGA Tour og jafnframt boð um að spila í Players mótinu.