Samstarfi Westy og Foley lokið
Westy eða m.ö.o. Lee Westwood þarf að leita sér að nýjum sveifluþjálfara en hann tilkynnti að samstarf sitt við Sean Foley væri lokið.
Westwood hafði aðeins unnið með Foley, sem m.a. þjálfar Tiger Woods og Justin Rose, frá því fyrir síðasta Opna breska á Muirfield, þar sem hann lenti í 3. sæti.
Síðan þá hefir hann aðeins 1 sinni orðið meðal efstu 10 á Evrópumótaröðinni og sigraði aldrei árið 2013 og hefir farið úr topp-10 á heimslistanum niður í 33. sæti.
Westwood hóf árið 2014 slælega þ.e. varð í 47. sæti á Farmers Insurance Open á PGA Tour og komst ekki einu sinni í gegnum niðurskurð á Waste Management Phoenix Open.
Westy staðfesti þegar hann var við æfingar fyrir Northern Trust Open á Riviera í Los Angeles, að leiðir hans og Foley hefðu skilið eftir áramót.
„Ég vildi vinna í sveiflustöðum og svoleiðis atriðum. Mér fannst ekki að Sean þjálfaði þannig, þannig að hann hentaði ekki því sem ég vidli gera,“ sagði Westy.
„Mér fannst að leikur minn væri sá sami og kom mér í 1. sæti heimslistans. Og ég var að vinna í hlutum sem ég vann ekki í þá, þannig að það virtist rökrétt að fara aftur að vinna í hlutum sem ég var að vinna í þá.
Westwood sagði loks að það væri ýmislegt í pípunum varðandi það að ráða nýjan sveifluþjálfa.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
