Steve Stricker. Stricker tekur ekki þátt í heimsmótinu í holukeppni
Steve Stricker hefir viðurkennt að líkurnar á að hann taki þátt í heimsmótinu í holukeppni þ.e. the WGC-Accenture Match Play Championship séu hverfandi vegna veikinda bróður hans.
Heimsmótið fer fram í Dove Mountain, Arizona 19.-23. febrúar, en ólíklegt er að Stricker taki þátt vegna þess að 50 ára bróðir hans, Scott, er á spítala.
Scott hefir verið á spítla frá 6. janúar og var fluttur á gjörgæslu fyrir 3 vikum.
„Hann var mjög hætt kominn er það sem mér er sagt,“ sagði nr. 12 á heimslistanum (Stricker). „Hann þarfnast lifur. Hann tórir, en svona getur þetta ekki varað lengi. Vonandi fær hann lifur fljótlega.“
Stricker vann heimsmótið í holukeppni 2001 þegar mótið fór fram í Ástralíu, en hann efast stórlega að hann taki þátt í ár, vegna þess að hann vill vera til staðar þegar bróðir hans gengst undir aðgerðina“
„Ég var á leið til Phoenix til þess að æfa þar í nokkra daga, en það verður ekkert úr því,“ sagði Stricker. „Það er heldur langsótt að ég komi og spili. Ég æfi á hverjum degi, en að baka til í höfðinu, finnst mér að ég ætti ekki að vera þar – nema eitthvað gerst fremur fljótt og þeir segja að það gæti vel gerst. Ég vil vera þarna þegar hann fer í aðgerðina.“
Ef Stricker tekur ekki þátt í Arizona þá er það enn annað áfallið fyrir skipuleggjendur heimsmótsins en þeir sem þegar hafa boðað að þeir muni ekki taka þátt er nr. 1 á heimslistanum, Tiger; nr. 2 á heimslistanum Adam Scott og fimmfaldur risamótameistari Phil Mickelson.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
