GR: Svanhildur efst eftir 4. púttmót GR-kvenna
Nú er 4. púttmóti GR-kvenna lokið en alls eru mótin 8. Alls hafa 147 konur tekið þátt í púttmótaröðinni og 63 tekið þátt í öllum 4 mótunum. Kvennanefnd GR sendi frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu:
„Spennan í púttmótaröð GR kvenna er að verða óbærileg. Aðeins munar einu stigi á þeim Svanhildi Sigurðardóttur og Sigríði M Kristjánsdóttur en þær hafa skipst á að halda forrystunni síðustu tvær vikurnar. Nú þegar mótaröðin er hálfnuð leiðir Svanhildur með einu stigi, skaust upp fyrir Sigríði í kvöld. Marólína Erlendsdóttir er jöfn Sigríði að stigum og í humáttina á eftir þeim raða aðrar GR konur sér á flottu skori.
Það er mjótt á munum og allt getur gerst þegar fjögur púttkvöld eru eftir.
Minnum á Facebook síðu GR kvenna:
https://www.facebook.com/groups/26821872890/
og heimasíðu GR þar sem lesa má allt um hvað er að gerast í klúbbnum www.grgolf.is
Við höfum orðið þess áskynja að konur kjósa að mæta fyrr í púttið heldur en auglýst er. Því finnst okkur eðlilegt að bregðast við með því að byrja fyrr og þar með hætta fyrr. Hér eftir hefjum við leik kl.18 og reiknum með að síðustu holl skili inn kortum um kl. 21.
Hlökkum til að sjá ykkur að viku liðinni.“
Sjá má stöðuna í púttmótaröð GR-kvenna eftir 4. mótið með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
