Nýju stúlkurnar á LET 2014: Cathrine Bristow (14/31)
Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour).
Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó. Leiknir voru 5 hringir og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014.
Það voru 4 stúlkur sem deildu 15. sætinu (voru jafnar í 15.-18. sætinu) og komust inn á mótaröðina með skor upp á samtals 1 undir pari, 359 högg: Anais Magetti; Marina Salinas; Isabelle Boineau og Cathryn Bristow.
Sú sem verður kynnt í kvöld er Cathryn Bristow, sem varð í 18.sætinu á eins og segir 359 höggum (70 74 70 70 75).
Cathryn fæddist 14. nóvember 1984 í Auckland á Nýja-Sjálandi og er því 29 ára. Fyrir utan Ko er hún einn frægasti kvenkylfingur Nýja-Sjálands.
Cathryn er 1.7m á hæð með dökkbrúnt hár og hnetubrún augu. Hún byrjaði að spila golf í janúar 1988 þá 4 ára.
Cathryn segir að sá sem hafi haft mest áhrif á hana í golfinu hafi verið þjálfari hennar Arron Cole.
Hún spilaði í bandaríska háskólagolfinu var í University of Oregon, þaðan sem hún útskrifaðist með gráðu í sálfræði.
Cathryn gerðist atvinnumaður í golfi 1. janúar 2010. Hápunktar hennar sem atvinnumanns eru sigrar hennar á Futures Tour, nú Symetra Tour þ.e. á Pennsylvania Classic árið 2011 og ALPG Tour, þ.e. Moss Vale Pro-am, 2012.
Meðal áhugamála Cathryn eru allar íþróttir, lestur góðra bóka, kvikmyndir, matur og að vera með fjölskylunni
Fréttamaður LET tók viðtal við Bristow sem sjá má með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
