Nýju stúlkurnar á LET 2014: Julie Tvede – (11/31)
Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour).
Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó. Leiknir voru 5 hringir og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014.
Það voru 4 stúlkur sem deildu 19. sætinu (voru jafnar í 19.-22. sætinu) og komust inn á mótaröðina með skor upp á samtals slétt par, 360 högg: Fiona Puvo, Krista Bakker, Julie Tvede og Elina Nummenpaa.
Finnski kylfingurinn Elina Nummenpaa hefir þegar verið kynnt og í dag er það Julie Tvede, sem varð í 21. sæti, sem verður kynnt, en hún var með lokaskor upp á 68 73 68 76 75.
Julie Tvede er fædd 21. maí 1980 í Fredriksberg í Danmörku og er því 33 ára. Heima í Danmörku er Julie í Asserberg golfklúbbnum.
Sem áhugamaður var Julie í danska golflandsliðinu 1998-2004. Julie sigraði m.a. á Colorado Women’s Open og Mexico Women’s Open árið 2004. Hún spilaði árið 2005 á Nykredit Masters á LET í boði styrktaraðila og lauk keppni T-26.
Julie var í bandaríska háskólagolfinu en hún er með BA gráðu í markaðsfræði frá University of Tulsa.
Julie gerðist atvinnumaður í golfi 2004. Hún hefir verið á LET í 8 ár frá árinu 2006 og er besti árangur hennar í móti einn T-5 árangur (þ.e. hún deildi 5. sætinu með öðrum kylfingum). Árið 2010 spilaði Julie á LET Access og sigraði það ár á Murcia Ladies Open.
Meðal áhugamála Julie eru tennis, íþróttir almennt og lestur góðra bóka.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
