Bandaríska háskólagolfið: Guðrún Brá spilar með Fresno State í vor
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, bætist í sístækkandi hóp ungra íslenskra kylfinga sem spila í bandaríska háskólagolfinu, nú í vor og mun Golf 1 að sjálfsögðu færa úrslitafréttir frá leikjum háskólaliðs hennar.
Guðrún Brá mun spila með golfliði Fresno State háskólans í Kaliforníu.
Emily Milberger þjálfari kvennaliðs Fresno State, The Bulldogs, fagnar komu Guðrúnar Brá í liðið og má sjá umsögn Milberger þar um með því að SMELLA HÉR:
Okkur hér heima er vel kunnugt um góðan árangur Guðrúnar Brá t.a.m. á Unglingamótaröðinni, þar sem Guðrún Brá hefir orðið Íslandsmeistari (holukeppni/höggleik) í öllum aldursflokkum sínum. Auk þess hefir hún, þrátt fyrir ungan aldur sigrað í stigamótum Eimskipsmótaraðarinnar og hefir tekið þátt í mótum bæði f.h. Keilis og landliðinu á erlendri grundu; t.a.m. í Irish U18 og kemur hún því með mikla reynslu í lið Fresno State.

Efri röð fv.: Anna Sólveig Snorradóttir, Hildur Rún Guðjónsdóttir og Saga Ísafold Arnarsdóttir. Neðri röð fv.: Högna Kristbjörg Knútsdóttir, Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Sara Margrét Hinriksdóttir, þátttakendur í Irish U18, árið 2012. Mynd: Keilir
Guðrún Brá er fædd 25. mars 1994 og er því 19 ára.
Fyrsta mótið sem Guðrún Brá leikur í með Fresno State, Peg Barnard Invitational, fer fram 15. febrúar n.k. og er mjög sterkt, en gestgjafi er Stanford háskólinn – þar sem Tiger og Michelle Wie voru við nám, en hvorugt þeirra spilaði þó í bandaríska háskólagolfinu, enda bæði orðin atvinnumenn.
Engu að síður: kvennalið Stanford í golfi hefir ávallt haft á að skipa sterkum kylfingum, þannig að þetta verður erfitt mót!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
