Evróputúrinn: Kaymer og McIlroy gekk vel á 1. hring í Abu Dhabi – Mickelson byrjar slælega
Martin Kaymer og Rory McIlroy eiga sameiginlegt að eiga að baki hræðilegt ár í golfinu 2013.
Því var mikilvægt að byrja nýja árið vel og það gerðu þeir í gær en báðir léku fyrsta hring á 2 undir pari, 70 höggum og deildu 19. sætinu eftir 1. hring.
Kaymer, sem fékk 5 fugla, skramba og skolla var ánægður: „Þetta var ágætis hringur, þetta er nefnilega erfiður völlur sérstaklega á morgnanna.“
„Þegar við vorum á fyrri 9 var karginn enn blautur – og ef maður lenti þar – þá komst maður ekkert – Þannig að allt í allt er 2 undir pari ágætis skor.“
„Þetta snýst í raun um að hitta brautir og ná að pútta í lok dags, þegar maður er í röffinu þá eru góðar líkur að maður fái skolla.“
„Þ.e.a.s. ef maður spilar golfvöll eins og þennan. Ef maður er 3, 4 eða 5 undi pari, getur maður ekkert hugsað um að ná enn öðrum fugli. Þetta snýrst um að einbeita sér að hverri holu.“
McIlroy sýndi mikla þolinmæði en á skorkorti hans voru 2 fuglar. „Ég nýtti mér ekki sum af þeim tækifærum sem ég gaf sjálfum mér,“ viðurkenndi Rory. „Þetta gætu hafa orðið nokkrir í viðbót en að byrja skollalaust er alltaf gaman og 2 undir pari er algjörlega ágætt skor, sem hægt verður að byggja á afganginn af vikunni.“
Mickelson átti óvanalega slælega byrjun. Það gekk ekkert hjá honum allan hringinn – hann hélt sér bara á parinu en fékk síðan skolla á 18. holu og 1 yfir, 73 högg staðreynd.
„Ég er bara að reyna að vinna mér leið inn í mótið“ sagði hinn ofurvarfærni Mickelson.
„Ég hef ekkert verið að keppa um tíma og það var ágætt að blotna aðeins í fæturna þarna.“
„Ég náði því miður engum fugli, en ég fékk heldur ekki skolla fyrr en alveg undir lokin. Mickelson var í 63. sæti eftir 1. hring og verður að hafa sig allan við ætli hann sér í gegnum niðurskurð.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
