PGA: Chris Kirk leiðir fyrir lokahring Sony Open
Það er bandaríski kylfingurinn Chris Kirk sem leiðir fyrir lokahring Sony Open, sem fram fer á Waialea CC í Honolulu á Hawaii.
Kirk er samtals búinn að spila á 12 undir pari, 198 höggum (64 69 65).
Öðru sætinu deila þeir Harris English og Will Wilcox aðeins 1 höggi á eftir Kirk.
Þrátt fyrir þrálát meiðsl í olnboga hangir John Daly inni í Sony Open mótinu og átti glæsilegan 3. hring upp á 64 högg! þar sem hann fékk 7 fugla og 1 skolla. Hvorki meiri né minni en 9 högga sveifla var milli hringja hjá honum, en hann spilaði meiddur í gær upp á 73 högg. Hann er eftir 64 högga glæsihringinn búinn að vinna sig upp í 18. sætið og vonandi að hann haldi út 4. og síðasta hringinn og nái að spila sitt besta golf!
Nr. 2 á heimslistanum, Adam Scott, sem leikur án kylfusveins síns Steve Williams er dottinn niður í 27. sætið, sem hann deilir ásamt 12 öðrum kylfingum. Hann er samtals búinn að spila á 6 undir pari og er því 6 höggum á eftir forystumanni mótsins, Chris Kirk.
Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag Sony Open SMELLIÐ HÉR:
Til þess að sjá hápunkta 3. dags á Sony Open SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
