Skrúður 3. brautin á Garðavelli, Akranesi, öðrum uppáhaldsgolfvalla Guðmundar. GL: Íþróttastjóri óskast til starfa
Auglýst er laus staða Íþróttastjóra Golfklúbbsins Leynis
Íþróttastjóri gegnir lykilhlutverki í starfi klúbbsins og hefur umsjón með skipulagi og þjálfun kylfinga í klúbbnum.
Starfssvið:
– Stefnumótun og markmiðasetning varðandi golfþjálfun.
– Ábyrgð á skipulagi og framkvæmd þjálfunar barna og unglinga.
– Ábyrgð á skipulagi og framkvæmd þjálfunar afrekskylfinga.
– Ábyrgð á þjónustu við almenna kylfinga á sviði þjálfunar.
– Upplýsingagjöf og samstarf við stjórn og nefndir klúbbsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
– Viðurkennt PGA golfkennaranám, PGA nemi, eða annað sambærilegt nám.
– Reynsla af sambærilegu starfi kostur.
– Leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
– Geta til að tjá sig í ræðu og riti.
– Jákvæðni, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Umsóknum skal fylgja greinagóð ferilskrá umsækjanda. Senda skal umsóknir á netfangið leynir@leynir.is, merkt golfkennari fyrir 14. janúar 2014.
Nánari upplýsingar um starfið veitir framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis í síma 896-2711 og á netfanginu gs@leynir.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
