Valdís Þóra Jónsdóttir, GL. Mynd: Golf 1 Erfið byrjun hjá Valdísi Þóru á lokaúrtökumótinu
Valdís Þóra Jónsdóttir, GL hóf í dag leik á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröð kvenna, LET (ens. Ladies European Tour) en mótið fer fram á golfvelli Samanah golfklúbbsins & Al Maaden golfstaðnum í Marrakech, Marokkó.
Alls taka 95 stúlkur þátt í lokaúrtökumótinu og eru leiknir 4 hringir. Eftir það er skorið niður og spila 60 efstu um 30 sæti á LET á 5. og lokahringnum.
Valdís Þóra átti því miður erfiða byrjun; fékk þrefaldan skolla á 1. holu þ.e. var með 7 högg á par-4 1. holuna og fékk síðan skolla á 3. holu. Valdís því komin í 4 yfir eftir 3 spilaðar holur. Hún sýndi þó karakter og tók þetta aftur á 4. og 7. holum þar sem hún var með fugla en kláraði fyrri 9 með skolla á 9. holu – aftur komin niður í 3 yfir par. Hún fékk síðan aftur skolla á 10. holu og er því á 4 yfir pari eftir 12 leiknar holur, en á 11. og 12. holu var hún á pari.
Hugurinn er hjá Valdísi Þóru síðustu 6 holurnar og vonandi tekst henni að taka þetta eitthvað aftur – markmiðið hlýtur að vera að spila meðal 60 efstu 5. hringinn!!!! Vonandi gengur allt vel!!! Sem stendur, eftir 12 leiknar holur deilir Valdís Þóra 71. sætinu með 8 öðrum, en það getur auðvitað breyst.
Í efsta sæti sem stendur er bandaríski kylfingurinn Tessa Teachman á 5 undir pari, 67 höggum – skilaði „hreinu“ skorkorti með 5 fugla og 13 pör – en margar eiga eftir að ljúka leik, þ.á.m. Valdís Þóra.
Til þess að fylgjast með Valdísi Þóru á skortöflu á 1. degi Lalla Aicha Tour School Final Qualifying SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
