Ólafur Már Sigurðsson, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 11. 2013 | 23:45

Afmæliskylfingar dagsins: Ólafur Már Sigurðsson og Húbert Ágústsson —————– 11. desember 2013

Afmæliskylfingar dagsins eru Ólafur Már Sigurðsson og Húbert Ágústsson.  Ólafur Már er fæddur 11. desember 1978 og er því 35 ára í dag. Hann er  klúbbmeistari Golfklúbbs Reykjavíkur 2013.  Nú á árinu spilaði Ólafur Már m.a. á Eimskipsmótaröðinni og tók þátt í úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina.

Húbert Ágústsson, GVS.

Húbert Ágústsson, GVS.

Húbert er fæddur 11. desember 1973 og á því 40 ára stórafmæli. Hann er í Golfklúbbi Vatnsleysustrandar.  Komast má á facebook síðu Húberts hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið:

Húbert Ágústsson   (Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru:  Bradley Dub Bryant, 11. desember 1954 (59 ára);   David Iwasaki-Smith, 11. desember 1959 (54 ára);  Jean-Louis Lamarre, 11. desember 1959 (54 ára);   Danny Mijovic, 11. desember 1960 (53 ára);  Mary Beth Zimmerman, 11. desember 1960 (53 ára);   Davidson Matyczuk, 11. desember 1967 (46 ára);  Jackie Gallagher-Smith, 11. desember 1967 (46 ára);   Magnús Gautur Kristjánsson, 11. desember 1968 (45 ára) Maarten Lafeber, 11. desember 1974 (39 ára); Carlie Butler, 11. desember 1981 (32 ára) François Calmels, 11. desember 1981 (32 ára); Oliver Bekker, frá S-Afríku, 11. desember 1984 (29 ára) ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is