Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 10. 2013 | 16:00

GK: Henning Darri bjartasta vonin!

Í gær fór fram aðalfundur Golfklúbbsins Keilis (GK) í Hafnarfirði.

Alls mættu 83 klúbbfélagar og kusu nýja stjórn sem gerð verður grein fyrir hér síðar.

Einnig voru veitt ýmis verðlaun fyrir góða frammistöðu unglinga í GK.

Íslandsmeistarinn í höggleik í strákaflokki 2012, og í drengjaflokki 2013, Henning Darri Þórðarson, hlaut verðlaun fyrir að vera bjartasta von GK.