Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 8. 2013 | 08:40

Ko í 2. sæti í Taíwan fyrir lokahringinn – Fyrsti sigur sem atvinnumaður í sjónmáli?

Lydia Ko er í 2. sæti á Swinging Skirts World Ladies Masters fyrir lokahringinn og e.t.v. er fyrsti sigur hennar sem atvinnumanns í golfi í sjónmáli.  Mótið fer fram 6.-8. desember 2013 og verður lokahringurinn því leikinn í dag.

Það eru KLPGA (kóreanska LPGA) og LPGA í Taiwan, sem standa fyrir Swinging Skirts mótinu.

Aðeins 8 af 95 keppendum mótsins eru á samtals skori undir pari eftir tvo hringi, en þar er m.a. um að kenna fremur hvössu veðri í Miramar Golf and Country Club í Taipei.

Í efsta sæti er So Yeon Ryu frá Suður-Kóreu á samtals 9 undir pari (67 68) og svo í 2. sæti er Lydia Ko eins og segir á 8 undir pari (68 68), aðeins 1 höggi á eftir.

Nr. 1 á heimslistanum Inbee Park er í 3. sæti á samtals 5 undir pari (63 76) og síðan er hin japanska Rara Anai í 4. sæti á samtals 4 undir pari (69 71).

Fimmta sætinu deila síðan NY Choi og Kyu Jung Baek á samtals  3 undir pari, hvor og í 7. sætinu eru síðan þær Sandra Gal og Soo Hwa Jang, á 1 undir pari.  Aðrir keppendur eru á samtals skori upp á par eða síðra.