Golfvellir í Sviss (3/102): La Côte
Icelandair býður nú upp á beint flug til Genfar í Sviss og nú opnast frábært tækifæri fyrir íslenska kylfinga að spila einhvern hinna frábæru 102 golfvalla í Sviss.
Í gær kynnti Golf 1 til sögunnar Villars golfvöllinn, sem er í aðeins 1 1/2 ökutíma fjarlægð frá Genf. Í dag verður kynntur annar frábær golfvöllur nálægt Villars. Þetta er völlur La Côte golfklúbbsins þ.e. í Bougy golfstaðnum (Golf Parc Signal de Bougy). Athugið að þetta er alvöru golfvöllur fyrir öll golfstig en ekki bara þá sem ná bogey, eins og mér var sagt í gríni 🙂
Þetta er ótrúlegur golfstaður, en Golf Park Signal Bougy er fyrsti opinberi golfstaðurinn í rómanska hluta Sviss. Líkt og Villars er hann með frábært útsýni yfir Mont Blanc, hæsta fjallið í Evrópu, Jura fjöllin og Genfarvatn.
Völlurinn er 18 holu par-70 og er í fallegu, hæðóttu landslagi og verður að segjast að það reynir á allar kylfur í pokanum. Hann er u.þ.b. 5000 metra langur og í 700 metra hæð yfir sjávarmáli. Árið 1999 var völlurinn aðeins 9 holu en hann var stækkaður 2004 í 18 holu völl.
La Côte er opinn frá 8. mars og fram til 22. nóvember 2014. Þar sem golftímabilið er svo stutt utandyra, líkt og á Íslandi, er frábær inniaðstaða í La Côte, þ.e. á Golf du Signal de Bougy golfstaðnum. Á æfingasvæðinu eru 80 básar þar af 23 innandyra; eins eru 2 púttflatir innandyra og 2 æfingaflatir þar sem æfa má vipp. Sérstök herbergi eru með vídeóupptökuvélum, þar sem leggjast má yfir sveifluna með golfkennurum.
Sé flogið með Icelandair til Genfar í vikuferð og byrjað á því að keyra til Villars mætti byrja á því að spila Villars völlinn (sem kynntur var í gær) og síðan er La Côte góður kandídat í völl nr. 2 á bakaleiðinni til Genf. Aðalmunurinn felst í hæðarmuninum á völlunum en Villars er í 1660 metra hæð meðan La Côte er í 700 metra hæð. Þetta eru hvorutveggja golfvellir með draumaútsýni.
Upplýsingar:
Heimilisfang: Golfclub La Côte / Golf Parc Signal de Bougy – Signal de Bougy – 1172 Bougy Villars
Sími: 058 5683200
Fax: 058 5683200
Tölvupósfang: golfbougy@gmvd.migros.ch
Heimasíða: SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

