Valdís Þóra Jónsdóttir, GL. Mynd: Golf 1 Afmæliskylfingur dagsins: Valdís Þóra Jónsdóttir – 4. desember 2013
Afmæliskylfingur dagsins er Íslandsmeistarinn í höggleik kvenna 2012 – Valdís Þóra Jónsdóttir. Hún er fædd 4. desember 1989 og er því 24 ára í dag. Valdís tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í höggleik á Hellu með lokapúttinu og samtals skori upp á 13 yfir pari, 293 höggum (71 75 72 75) í lok júlí 2012. Golf 1 tók viðtal við Valdísi Þóru fyrir lokadag mótsins sem rifja má upp með því að SMELLA HÉR:
Valdís Þóra slær upphafshögg sitt á Íslandsmótinu í höggleik 2012. Mynd: Golf 1
Valdís Þóra er klúbbmeistari Golfklúbbsins Leynis í ár og mörg undanfarandi ár.
Valdís Þóra er í afrekshóp GSÍ völdum af Úlfari Jónssyni, landsliðsþjálfara. Hún spilaði golf með golfliði Texas State í bandaríska háskólagolfinu, en þaðan útskrifaðist hún á s.l. ári.
Valdís Þóra þátt í HM kvennalandsliða áhugamanna í Tyrklandi í september 2012.
Á morgun, 5. desember 2013, hefur Valdís Þóra leik á Lalla Aicha Q-school LET (Ladies European Tour) sem fram fer í Marokkó og er Tinna Jóhannsdóttir, GK, sem þátt tók á s.l. ári Valdísi Þóru til halds og trausts.
Sjá má eldra viðtal, sem Golf1 tók við Valdísi Þóru SMELLIÐ HÉR:
Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan:
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024



