Draumur Day um að verða nr. 1
Undanfarin ár hafa verið erfið fyrir Jason Day og jafnvel á þessu ári sleppur hann ekki við áföllin þó að þessu sinni séu þau utan vallar, en hann missti nú um daginn 8 ættingja sína í fellibyl á Filipseyjum, en þaðan er móðir hans.
Á honum hefir lítið borið síðan að hann sigraði á Byron Nelson Championship árið 2010 og varð síðan í 2. sæti á ýmsum stórmótum s.s. Masters 2011 og Opna bandaríska.
Þeim mun meiri var gleði Day að sigra nú um helgina í ISPS Handa heimsmótinu, í Melbourne, Ástralíu, en hann sigraði bæði í einstaklings- og liðakeppninni…. og ekki skemmdi fyrir að sigurinn vannst á heimavelli.
Við þennan sigur fór Day úr 18. sætinu á heimslistanum í 11. sætið og hann gerir sér vonir um að verða innan skamms aftur kominn meðal topp-10 í heiminum.
Sigurinn hefir vakið upp gamlan draum hjá Jason Day um að verða nr. 1 á heimsistanum, sbr. það sem hann sagði eftir sigurinn á heimsmótinu s.l. helgi: „Að verða nr. 1 hefir verið markmið mitt allt frá því ég tók fyrst upp kylfu.“ Og síðan bætti hann við: „Ég hef alltaf viljað verða nr. 1. Ég og þjálfari minn til langs tíma og kylfusveinn, Colin [Swatton] settum okkur markmið þegar við hittumst fyrst, þegar ég var 12-13 ára um að við vildum verða nr. 1″
„Markmiðið var að verða nr. 1 við 22 ára aldurinn en við enduðum með því að verða nr. 7 þegar ég var 23, þannig að það vantaði aðeins á, en það er enn í huga mér að ná að verða nr. 1.“
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
