Glæsileg titilvörn hjá Adam Scott
Nr. 2 á heimslistanum Adam Scott er aldeilis að gera góða hluti heima í Ástralíu.
Hann hafði þar til í ár aldrei sigrað á PGA Australian mótinu, sem hann vann síðustu helgi og nú varði hann titil sinn Australian Masters.
Hann er semsagt búinn að vinna tvö mót í röð og mótið sem hann vann nú í morgun er hann búinn að sigra á tvö ár í röð.
En sigurinn var síður en svo gefinn. Nr. 8 á heimslistanum, bandaríski kylfingurinn Matt Kuchar, sem einnig tók þátt í mótinu veitt Scott mikla keppni lokahringinn. Reyndar var Kuchar yfir þegar 4 holur voru eftir en þegar kom að lokaholunni voru þeir Kuchar og Scott jafnir.
Því miður átti Kuchar í erfiðleikum á lokaholunni, setti bolta sinn í glompu, sem hann þurfti að nota 2 högg á til að ná upp úr – lokaskorið hans 68 en það dugði ekki gegn Scott, sem þó átti lakari lokahring upp á 71 högg.
Samtals lék Scott á 14 undir pari, 220 höggum (67 66 66 71) meðan Kuchar, sem varð í 2. sæti lék á 12 undir pari, 222 höggum (71 66 67 68).
Í 3. sæti varð hinn fimmtugi Vijay Singh á samtals 10 undir pari, 274 höggum (72 68 63 71).
Forystumaður 1. dags, heimamaðurinn Nick Cullen varð í 1. sæti á samtals 9 undir pari og síðan deildu tveir aðrir heimamenn Ryan Fox og Matthew Griffin 5. sætinu á samtals 6 undir pari.
Sex kylfingar deildu síðan 7. sætinu á samtals 5 undir pari, hver, en þeirra á meðal voru Geoff Ogilvy með nýja pútterinn og nýliði Alþjóðaliðsins, Zimbabwemaðurinn Brendon de Jonge.
Jarrod Lyle sem nú er að spila í 1. sinn eftir að hafa náð sér eftir erfiða baráttu við krabbamein varð í deildi 57. sætinu, þ.e. varð meðal neðstu sem komust í gegnum niðurskurð – en hann er bara ánægður að vera farinn að keppa aftur og í raun glæsilegt að komast í gegnum niðurskurð eftir svo langa fjarveru!
Skemmtilegt mót að baki í Ástralíu og aðeins ástralska meistaramótið framundan og gaman að sjá hvort Adam Scott tekur þrennu!!!
Til þess að sjá lokastöðuna á Australian Masters SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
