Evróputúrinn: Victor Dubuisson sigraði á Turkish Airlines Open
Það var hinn 23 ára Victor Dubuisson, alías „Mozart“, sem stóð uppi sem sigurvegari á Turkish Airlines Open. Dubuisson er oft kallaður „Mozart“ vegna einstaklega fallegrar sveiflu sinnar.
Hann sigraði í Tyrklandi á skori upp á samtals 24 undir pari, og lék lokahringinn á 3 undir pari, 69 höggum og hlaut að launum sigurtékkann upp á €848,930 (u.þ.b. 140 milljónir íslenskra króna).
„Ég veit ekki hvernig á að lýsa þessu,“ sagði Dubuisson eftir að sigurinn var í höfn. „Ég geri mér ekki almennilega grein fyrir hvað er að gerast. Ég var undir svo mikilli stressi á síðustu holunni.“
„Að setja niður þetta pútt á 17. (flöt) var ótrúlegt. Það var ótrúlegt, og fuglinn á 18. (flöt) var bara bónus.“
„En jafnvel í þessu síðasta pútti var ég svo stressaður. Þetta var lengsti dagurinn á vellinum, sem ég hef átt. Ég er mjög stoltur af því sem ég afrekaði.“
Í 2. sæti, 2. sætum á eftir Dubuisson varð Jamie Donaldsson, sem kleif bratt upp skortöfluna eftir glæsilokahring upp á 9 undir pari, 63 höggum. Samtals varð Donaldson á 22 undir pari.
Þriðja sætinu deildu síðan meistari Opna bandaríska 2013, Justin Rose og Tiger Woods á samtals 20 undir pari, hvor. Rose lék lokahringinn á 7 undir pari, 65 höggum og Tiger var litlu síðri, lék lokahringinn á 67 höggum, en allt kom fyrir ekki, 3. sætið staðreynd.
Fimmta sætinu deildu síðan Ian Poulter (sem lék lokahringinn á 3 undir pari, 69 höggum) og Frakkinn Raphaël Jacquelin (sem lék lokahringinn á 4 undir pari, 68 höggum) samtals á 19 undir pari, hvor.
Sjöunda sætinu deildu síðan 3 kylfingar, allir á samtals 18 undir pari, hver: Henrik Stenson, (lokahringur 3 undir pari, 69 högg) Bernd Wiesberger (lokahringur 8 undir pari, 64 högg) og Marc Warren (lokahringur 7 undir pari, 65 högg).
Til þess að sjá lokastöðuna á Turkish Airlines Open SMELLIÐ HÉR:
Til þess að sjá hápunkta 4. dags (lokadagsins) á Turkish Airlines Open SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
