Evróputúrinn: Victor Dubuisson leiðir fyrir lokahring Turkish Airlines Open
Í morgunn var leikinn næstsíðasti hringur á Turkish Airlines Open. Leikið er í The Montgomerie Maxx Royal golfstaðnum, í Antalya.
Efstur fyrir lokahringinn, sem fer fram á morgun, er Victor Dubuisson frá Frakklandi, en hann átti glæsihring upp á 63 högg í dag.
Samtals er Dubuisson búinn að leika á 21 undir pari, 195 höggum (67 65 63). Sjá má kynningu Golf 1 á Dubuisson hér á eftir:
„Victor Dubuisson er einn af 3 Frökkum, sem fékk kortið sitt á Evróputúrinn 2011, eftir að hafa lent í 11.-18. sæti í Q-school, á PGA Catalunya golfvellinum, í Girona, á Spáni, í desemberbyrjun (4.-10. desember 2010.
Victor lauk keppni á samtals 12 undir pari, þ.e. 416 höggum (69 74 69 65 68 71).
Victor fæddist 22. apríl 1990 í Nice, í Frakklandi og er því 23 ára gamall. Hann býr í kvikmyndahátíðarborginni frægu, Cannes, á Côte d´Azur.
Victor á að baki glæstan feril í áhugamennskunni í Frakklandi. Hann vakti fyrst athygli á sér með því að vera 7 sinnum meðal 10 efstu árið 2008 á áhugamannamótaröðinni í Frakklandi.
Árið 2009 spilaði Victor á Challenge Tour og varð 4 sinnum meðal topp 10. Árið 2009 varð hann nr. 1 á heimslista áhugamanna en það ár vann hann m.a. European Amateur Championship. Sigurinn í því móti varð til þess að hann hlaut þátttökurétt á Opna breska 2010, þar sem hann lék í holli með KJ Choi og Bubba Watson á St Andrews, en komst því miður ekki í gegnum niðurskurð á þessu eina risamóti, sem hann hefir tekið þátt í til þessa.
Í framhaldinu gerðist Victor atvinnumaður í golfi, í júlí 2010.
Vegna fallegrar sveiflu sinnar hefir Victor verið uppnefndur “Mozart”. (Framangreind grein greinarhöfundar birtist 29. janúar 2011 á iGolf).
Í 2. sæti, 5 höggum á eftir, á samtals 16 undir pari er Ryder Cup hetjan Ian Poulter á samtals 16 undir pari, 201 höggi (66 66 68).
Þriðja sætinu deila síðan nr. 1 á heimslistanum Tiger Woods, Henrik Stenson frá Svíþjóð, Raphaël Jacquelin frá Frakklandi og Alejandro Cañizarez félagi í Valderrrama golfklúbbnum á Spáni.
Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag Turkish Airlines Open SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
