Golfvellir í Frakklandi: Crécy (8/10)
Crécy golfklúbburinn er í Domaine de la Brie, 50 km í austur frá París.
Hann státar af tveimur 18-holu golfvöllum; Montpichet golfvellinum, sem hannaður var af A. De Ormesson árið 1987 og Vignoly golfvellinum, sem hannaður var af golfgoðsögninni Arnold Palmer árið 2009 og er skrautfjöður Crécy.
Montpichet er par-72, 6038 metra af öftustu teigum. Vignoly er líka par-72 en aðeins lengri 6342 af öftustu teigum. Vignoly er auk þess mun meira krefjandi en Montpichet. Vignoly er fullvaxinn keppnisvöllur með fjölda vatnshindranna og sandglompa. Báðir eru vellirnir í hinum gullfallega Marne dal. Landslagið bylgjast áfram en hvorugur völlurinn er yfir um erfiður undir fótinn. Vignoly er e.t.v. meiri völlur fyrir reynslumeiri lágforgjafarkylfinga, en 5 teigastæði sjá til þess að allir kylfingar geta haft gaman af hvorum vellinum, sem er.
Klúbbhús Crécy er 17. aldar gamall bóndabær, sem búið er að gera skemmtileg upp.
Crécy golfvöllurinn dregur ekki nafn sitt af hinni frægu orustu um Crecy í 100 ára stríðinu þar sem 15.000 riddarar og bogmenn Eðvarðs III Englands-konungs gjörsigruðu 35000 riddara og krossbogmenn Filipps VI Frakkakonungs. Orustan fór fram árið 1346 í Crécy-en-Ponthieu. Golfvöllurinn dregur nafn sitt af frægri kappellu í bænum við völlinn Crécy-en-Chapelle frá 13. öld.
Upplýsingar:
Heimilisfang: Crécy Golf Club (Domaine de la Brie) – route du Guérard, Crécy la Chapelle, Ile-de-France, F-77580
Sími: 33 (0) 1 64 75 34 44 (Pro Shop)
Fax: 33 (0) 1 64 75 34 45
Heimasíða: SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024


