Bandaríska háskólagolfið: Axel á 71 og Guðmundur Ágúst á 75 á 2. degi í Hawaii
Tveir íslenskir kylfingar í bandaríska háskólagolfinu, Axel Bóasson, GK og golflið Mississippi State og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og golflið ETSU eru nú staddir á Hawaii, þar sem þeir taka þátt í Warrior Princeville Makai Invitational í Makai golfklúbbnum í Princeville.
Mótið stendur dagana 4.-6. nóvember og þátttakendur eru 93 frá 18 háskólum.
Eftir 2. dag eru Axel og félagar í 3. sæti í mótinu og er skor Axels farið að telja en hann deilir 4. sætinu yfir besta skor liðs síns. Axel er búinn að spila á samtals 145 höggum (74 71) og er sem stendur T-53, þ.e. deilir 53. sætinu með 6 öðrum.
Guðmundur Ágúst og ETSU deila 7. sætinu í liðakeppninni. Guðmundur Ágúst hefir leikið á 147 höggum (72 75) en er því miður á 5. og lakasta skori liðs síns þannig að það telur ekki í liðakeppninni. Í einstaklingskeppninni er Guðmundur Ágúst T-64.
Til þess að sjá stöðuna á 2. degi í Hawaii SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

