Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 1. 2013 | 20:00

Golfvellir í Frakklandi: Golf Disneyland (5/10)

Í kvöld verður 5. golfvöllurinn í París kynntur en það er Golf Disneyland í París.

Völlurinn var opnaður fyrir golfleik 1992 og hönnuður hans er Ronald (Ron) Fream.

Þetta er 27 holu skógarvöllur, með nokkuð jafnar þrjár 9-holu hluta, Rauða, Bláa og Appelsínugula 9 holu hlutanna, sem oft eru nefndir Pétur Pan, Lísa (í Undralandi) og Winnie (the Pooh).

Þessir þrír 9-holu hlutar Golf Disneyland eru ekkert frábrugðnir hverjir öðrum.  Allir eru þeir fremur þægilegir undir fótinn, á fremur opnu svæði, með vatnshindrunum hér og hvar, mikið af sandglompum og stórum og miklum flötum.

Allar hæðir eða bylgjótt landslag eru fremur af völdum skurðgrafa en af hendi náttúrunnar. Þetta er tilbúið landslag. Holurnar eru vel staðsettar og karginn refsar ekkert um of.

Upplýsingar:

Heimilisfang:  Golf Disneyland Paris, Allèe de la Mare Houleuse, Magny le Hongre, Ile-de-France 77700

Sími: 33 (0) 1 60 45 68 90 (skrifstofa);  33 (0) 1 60 45 68 90 (pr0 shop)

Fax: 33 (0) 1 60 45 68 33

Heimasíða: SMELLIÐ HÉR: