Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2013 | 18:00

Golfvellir í Frakklandi: Fontainebleu (3/10)

Nú er komið að þriðju gerseminni, sem kynnt verður af fjölskrúðugum golfvöllum í kringum París í Frakklandi.

Í kvöld verður sjónum beint að Fontainebleu golfvellinum, en Golf World valdi þann völl m.a. 14. besta golfvöll á meginlandi Evrópu.

Klúbbhús Fontainebleu

Klúbbhús Fontainebleu

Um helgar kostar um €100 (þ.e. um 16.000,-) að spila hring á Fontainbleu.

Þetta er gamalgróinn 18 holu, par-72 skógarvöllur, sem er 6074 metra af öftustu teigum.  Hann opnaði 1909 og er hannaður af Tom Simpson.

Hann þykir „enskastur“ af öllum völlum í Frakklandi.  Þetta er ekki auðveldasti golfvöllurinn undir fótinn en allan hringinn bylgjast hann upp og niður í hæðum.  Sum trén við þröngar brautirnar eru meira en 100 ára gömul.

Þetta er völlur sem óhætt er að segja að sé krefjandi og það reynir á alla golfþekkingu sem og kylfur í pokanum…. en hann er líka yndislegur!

Síðan eru sögulegar minjar líka við hvert fótmál, en höfuðstöðvar Napóleons voru við völlinn hér áður fyrr og má enn sjá minjar þeirra.

Upplýsingar:

Heimilisfang: Golf de Fontainebleu, Route d´Orléans, Fontainbleu, Ile-de-France F-77300, Frakkland.

Símar: 00 33 (1) 64 22 22  05 (skrifstofa);  00 33 (1) 64 22 74 19 (pro shop) og  00 33 (1) 64 22 63 76 (fax).

Email: golf.fontainebleu@orange.fr

Vefsíða: SMELLIÐ HÉR: