Kristinn Reyr Sigurðsson, GR. Mynd: Golf 1 Afmæliskylfingur dagsins: Kristinn Reyr Sigurðsson – 22. október 2013
Í gær fór því miður fram viðgerð á Golf 1 golffréttavefnum og því voru engar fréttir skrifaðar í rúman sólarhring. Ekki var skrifuð afmælisgrein og birtist hún því í dag.
Afmæliskylfingur gærdagsins, 22. október 2013 er Kristinn Reyr Sigurðsson. Kristinn Reyr er fæddur 22. október 1996 og varð því 17 ára í gær. Kristinn Reyr er í Golfklúbbi Reykjavíkur. Hann spilaði m.a. á Íslandsbankaröðinni s.l. sumar með góðum árangri. Þannig varð Kristinn Reyr í 8. sæti í piltaflokki á 1. mótinu uppi í Þórlákshöfn; hann varð í 10. sæti á 2. mótinu á Strandarvelli; Kristinn Reyr varð síðan í 3. sæti á Íslandsmótinu í holukeppni – vann leikinn um 3. sætið 2&0. Kristinn Reyr varð síðan í 2. sæti á 5. móti Íslandsbankamótaraðarinnar á Jaðrinum; hann varð í 7. sæti í Íslandsmótinu í höggleik og í 7. og síðasta mótinu á Íslandsbankamótaröðinni í Grafarholtinu varð Kristinn Reyr í 3. sæti.
Kristinn Reyr varð í 4. sæti á stigalista GSÍ 2013 í piltaflokki.
Eins tók Kristinn Reyr þátt í nokkrum mótum Eimskipsmótaraðarinnar, í KPMG bikarnum í liði höfuðborgarinnar og í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ.
Kristinn Reyr er í afreksmannahóp GSÍ völdum af landsliðsþjálfaranum, Úlfari Jónssyni. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan:
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Adam Gee, 22. október 1980 (33 ára); Peter Tomasulo, 22. október 1981 (32 ára); Þórður Ingi Jónsson, 22. október 1988 (25 ára) ….. og …..
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem áttu afmæli í gær innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024






