NÝTT á Golf 1!!! Golfvellir í Frakklandi
Golf 1 mun nú á næstu dögum hefja kynningu á 10 golfvöllum í Frakklandi, en sjónum verður einkum beint að golfstöðum í kringum París.
Golf 1 hefir áður verið með kynningar á golfvöllum einkum á vinsælum golfáfangastöðum Íslendinga á Spáni, en nú verður litið yfir til nágrannaríkisins Frakklands, þar sem í raun er rík hefð fyrir golfi, þótt því miður hafi íþróttin enn stimpil forréttindaíþróttar hinna ríku á sér.
Árið 2010 tók Evrópska golfsambandið (European Golf Association) saman tölfræði yfir fjölda golfvalla í Evrópu og þar var Frakkland í 3. sæti yfir flesta golfvelli á eftir Englandi og Þýskalandi – en alls voru þá 574 golfvellir í Frakklandi (Í Englandi voru 1881 og í Þýskalandi 700 – Írland var í 5. sæti með 417 golfvelli á eftir Svíþjóð sem var í 4. sæti með 456 – Ísland var í 18. sæti með 66 golfvelli!)
Ljóst er að einungis verður brotabrot af golfstöðum og völlum Frakklands kynnt hér næstu daga. Vonandi eru greinarnar engu að síður fræðandi fyrir lesendur og veita einhverjum nýjar hugmyndir um áhugaverða golfvelli til að spila á.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
