Heimslistinn: Simpson í 17. sæti!
Webb Simpson fór úr 24. sætinu upp í 17. sæti heimslistans vegna sigurs síns á Shriners Hospitals for Children Open nú um helgina.
Þetta er besti árangur Simpson nú á árinu, frá því að hann var í 16. sæti eftir T-15 árangur á Players Championship í ár.
Þetta er hins vegar ekki besti árangur Simpson á heimslistanum – hann var í 5. sæti eftir sigur sinn á Opna bandaríska 2012. Sigur hans í Las Vegas í gær er 4. titill hans á PGA Tour.
Ryo Ishikawa sem varð jafn öðrum í 2. sæti á TPC Summerlin (þ.e. á Shriners Hospitals for Children Open) fór upp um 42 sæti á heimslistanum úr 154. sætinu í 112. sætinu.
Staða efstu 10 kylfinga á heimslistanum er óbreytt frá því í síðustu viku, þ.á.m. er Rory McIlroy enn í 6. sæti þrátt fyrir 2. sætið á Kolon Korean Open á OneAsia túrnum.
Sjá má heimslistann í heild með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
