Lexi komin í 14. sæti heimslistans
Lexi Thompson, sem sigraði á Sime Darby LPGA Malaysia mótinu nú um helgina er komin í 14. sæti á Rolex-heimslista kvenkylfinga og er þetta það hæsta sem hún hefir komist á listanum.
Með sigrinum fór Lexi upp um 7 sæti úr 21. sætinu í 14. sætið og er hún þar með 4. hæst rankaði bandaríski kvenkylfingurinn á listanum á eftir nr. 3 Stacy Lewis, nr. 11 Paula Creamer og nr. 12 Cristie Kerr.
Staðan á topp-10 á Rolex-heimslistanum er óbreytt. Inbee Park trónir í efsta sæti, í 2. sæti er norska frænka okkar Suzann Pettersen; í 3. sæti er sem segir Stacy Lewis; í 4. sæti er So Yeon Ryu; í 5. sæti er áhugamaðurinn 16 ára Lydia Ko; í 6. sæti er Na Yeon Choi.
Þá er komið að einu breytingunni á topp-10 hjá konunum á Rolex-heimslistanum. Kínverski kylfingurinn Shanshan Feng sem búin er að standa sig svo vel að undanförnu hefir sætaskipti við áströlsku golfdrottninguna Karrie Webb þ.e. Feng er komin í 7. sætið og Webb fer niður í 8. sætið.
Í 9. sæti er eftir sem áður skoski kylfingurinn Catriona Matthew og í 10. sæti er IK Kim.
Fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslistanum, Yani Tseng er komin niður í 22. sætið á Rolex-heimslistanum.
Til þess að sjá listann í heild SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
