Afmæliskylfingur dagsins: Kristófer Orri Þórðarson – 13. október 2013
Afmæliskylfingur dagsins er Kristófer Orri Þórðarson Kristófer Orri er fæddur 13. október 1997 og er því 16 ára í dag. Kristófer Orri er í GKG, spilaði á Íslandsbankamótaröðinni í sumar og stóð sig vel! Kristófer Orri varð þannig t.a.m. í 6. sæti á stigalista GSÍ í drengjaflokki.
Á 1. móti Íslandsbankamótaraðarinnar varð Kristófer Orri í 5. sæti; Kristófer Orri varð í 3. sæti (á eftir Fannari Inga og Birgi Birni) á 2. móti Íslandsbankamótaraðarinnar á Hellu; á 3. mótinu (Íslandsmótinu í holukeppni) komst Kristófer Orri í 16 manna úrslit en varð að láta í minni pokann fyrir Henning Darra, GK á 19. holu og tapaði því naumt.
Kristófer Orri tók ekki þátt í 4. móti Íslandsbankamótaraðarinnar því hann var einn af 12 unglingum sem tóku þátt í Finnish International Junior Championship mótinu sem fram fór dagana 26.-28. júní á Cooke vellinum í Vierumäki í Finnlandi, þar sem hann stóð sig vel.
Kristófer Orri var engu að síður mættur í 5. mót Íslandsbankamótaraðarinnar á Jaðrinum á Akureyri, þar sem hann varð í 2.-3. sæti.
Á 6. mótinu (Íslandsmótinu í höggleik) var Kristófer Orri m.a. á besta skori fyrsta degi í drengjaflokki í Leirunni, glæsilegum 3 undir pari, 69 höggum!!! Hann hafnaði síðan í bronssætinu í mótinu.
Nú snemma á árinu sigraði Kristófer í Febrúarmóti I hjá GSG og eins er hann slyngur púttari en hann sigraði í púttmóti barna- og unglinga hjá GKG í janúar. Af öðrum mótum sem Kristófer Orri tók þátt í mætti nefna Unglingaeinvígið í Mosfellsbæ, en þar var hann einn af 10 sem kepptu til úrslita.
Komast má á facebooksíðu Kristófers Orra til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:
Kristófer Orri Þórðarson · 16 ára (Innilega til hamingju með 16 ára afmælið!!!
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Brian Thomas („Bud“ eða“Buddy„) Allin 13. október 1944 (69 ára); Chako Higuchi, f. 13. október 1945 (68 ára); Kristján Jóhannsson f. 13. október 1945 (68 ára); Páll Pálsson, 13. október 1972 (41 árs); Gonzalo Fernández-Castaño, 13. október 1980 (33 ára); Cassandra Elaine Kirkland, 13. október 1984 (29 ára); Kristín Inga, f. 13. október 1986 (27 ára) ….. og …..
Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024







