Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2013 | 08:30

Bandaríska háskólagolfið: Sunna lauk leik í 21. sæti á Lady Pirate

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik, Sunna Víðisdóttir, GR og golflið Elon luku keppni í gær á Lady Pirate mótinu í Greenville, Norður-Karólínu.

Mótið var tveggja daga frá 7.-8. október 2013. Þátttakendur voru 90 frá 16 háskólum.

Leiknir voru 2 hringir fyrri daginn og var lokahringurinn leikinn í gær.

Sunna lék á samtals 228 höggum (77 74 77).  Hún lauk leik í  21. sæti í einstaklingskeppninni, sem hún deildi með 2 öðrum.

Lið Elon varð 10. sætinu í liðakeppninni og var Sunna á 1.-2. besta skori liðs síns.

Næsta mót sem Sunna og Elon taka þátt í er Palmetto Intercollegiate mótið, sem hefst á Kiawah Island í Suður-Karólínu, 28. október n.k.

Til að sjá lokastöðuna á Lady Pirate mótinu SMELLIÐ HÉR: